Velkomin á heimasíðu Akkurs

Akkur er óháður greiningaraðili á hlutabréfamarkaði sem kemur með þá nýjung að borðinu að greiningarefni félagsins mun verða opið almenningi án endurgjalds. Fyrirkomulagið verður þannig að styttri útgáfa af verðmatsskýrslu verður birt opinberlega (opin öllum) 10 dögum eftir að skýrslan er gefin út til áskrifenda.

Það er einlægur vilji Akkurs að auka áhuga almennings á fjárfestingum og er þetta liður í því. Til þess að koma til móts við almenning mun Akkur bjóða einstaklingum upp á ódýra áskrift fyrir þá sem vilja fá aðgang að öllu efni, 5.000kr á mánuði. Það verð gildir aðeins fyrir einstaklinga en ekki lögaðila.

Auk þessa mun Akkur birta pistla um ýmis mál sem tengjast hlutabréfafjárfestingum, beint eða óbeint. Akkur hvetur alla sem hafa áhuga á fjárfestingum og fjármálum fyrirtækja að skrá sig á póstlistann hér á síðunni.

Akkur tekur einnig að sér hverskyns greiningar- og ráðgjafarvinnu fyrir einstaklinga og fyrirtæki, t.d. gerð verðmats, rekstrarráðgjöf og aðra tengda ráðgjöf.

Ef þú hefur áhuga á að tryggja þér áskrift eða aðra þjónustu getur þú haft samband með því að senda tölvupóst á akkur@akkur.net.

Greiningar

Arion banki - Frumskýrsla
Akkur gefur út frumskýrslu um Arion banka.

Skráðu þig á póstlistann

Skráðu þig á póstlistann og fáðu útgefið efni sent í tölvupósti. Með skráningu samþykkir þú skilmála og fyrirvara Akkurs sem má nálgast hér.